9.9.05

Dúndurtónlist

Það er svo gaman að rifja upp tónlist sem maður hlustaði á þegar maður var lítill. Til dæmis Yazoo eða Yaz í USA. Hér eru myndbönd með þeim.
Við Bogga vorum að rifja upp tónlistarmyndband frá 9. áratugnum. Tveir töff gaurar, annar hvítur með stutt ljóst hár og hávaxinn. Svo var hinn svartur, með sítt hár sem bylgjaðist niður á axlir. Hann var örugglega í hvítum mittissíðum jakka með einhverju axlarskrauti, blátt eða gull. Þeir voru staddir í einhverju setri, og voru að rölta þar um og hlaupa, bæði úti og inni. Greinilega haust því laufblöð voru útum allt og þoka. Þetta myndband var sýnt í Ríkissjónvarpinu á sama tíma og True Blue eða Who's that girl með Madonnu.
Ekki má gleyma Poison, söngvarinn þótti svo sætur. Ljósbláar rifnar gallabuxur, klútur um aflitaða hárið, eye-linerinn,varalitur.. og ljós ljós bláu augun. Fleiri myndir má finna hér. Í uppáhaldi hjá mér þá voru líka Taylor Dane, Ereasure, Debbie Gibson og síðan en ekki síst Sam Brown með hárauðann varalit að syngja dramatíska lagið STOP! af samnefndri plötu;

Oh you better stop before you tear me all apart
You better stop before you go and break my heart
Ooh you better stop.

Engin ummæli: