Farðu að læra Ýr !
Ég eyddi alveg hræðilega óáhugaverðum pósti sem ég skrifaði í gær. Með þessu er ég að segja að ég pósti bara áhugaverðum póstum. Sem er ekki satt. Veit það alveg.
En allavega þá hef ég stundum velt gallabuxum fyrir mér. Það er alveg ótrúlegt hvað þessar buxur er vinsælar. Ég held að flestum finnst þær ekki einu sinni neitt sérstaklega þægilegar. Ég á 2 gallabuxur og nota þær mest af þeim buxum sem ég á. Svo eru lang lang flestir í bláum eins og allir vita. Afhverju? Allir eins, mætti halda að þær séu eins og skólabúningarnir í Bretlandi. Mætti jafnvel kalla gallabuxur samfélagsbuxurnar eða hversdagsbuxurnar.
Fór að sjá Secrets of the psychics uppí Öskju í gærkvöldi sem var sýnd á vegum Skeptíkus, hreyfingu ótrúaðra stúdenta. Hún hrærði í hausnum á manni. Maður veit auðvitað að töfrabrögð byggjast ekki á einhverju yfirnáttúrulegu en þegar kemur að yfirnáttúrulegum hlutum er hvorki hægt að sanna né afsanna. Í myndinni var einnig fjallað um spákonur, lófalestur og stjörnuspeki. Niðurstaðan var sú að fólk vill trúa á svona hluti til að reyna að komast nær sannleikanum um sjálft sig. Því má segja að hugarfar einstaklinga skiptir öllu máli.
Ég vil trúa að það sé líf eftir dauðann. En ég er veit ekki hvort það sé þannig þó mig langi virkilega að trúa því. Finnst það meira spennandi og veitir mér drifkraft í að öðlast þroska í lífinu og velja ekki alltaf auðveldustu leiðina útúr erfiðum málum. Hagstæðast að takast á við hlutina í stað þess að forðast þá. En afhverju þá að gera það ef það gagnast manni ekkert til frambúðar, allt mun enda og maður gleymist fljótt? Kannski vegna þess að maður kynnist þá sínum innri manni, uppgvötar þá hæfileika sem maður hefur og finnur þá tilgang. Kannski að tilgangurinn sé aðeins tímabundinn, að skilja eftir sig minnisvarða sem reynist komandi kynslóðum vel.
Það fólk sem ég þekki sem er sannfært um að það hafi lifað áður er gott fólk í mínum huga. Get spjallað endalaust við það. En ég þekki auðvitað ekki alla, og eru alltaf einhverjar undantekningar.
Það hefur verið spáð nokkrum sinnum fyrir mér með tarotspilum og flest allt hefur staðist. Þó að spáin hafi innihaldið neikvæða hluti sem mig langaði ekki að væru sannir og gerðu mig pínu stressaða. Kannski er þetta bara innsæi, að vera góður í að lesa fólk. En ég lít meira á þetta sem dægrastyttingu og til að hafa gaman af.
Svo er talað um gamlar sálir og ungar. En ég segi, ef þær séu nú til, að ungar sálir eru ekki verri en gamlar. Það væri allt leiðinleg og óspennandi ef allir væru gamlar sálir. Ungar sálir geta verið fullar af lífskrafti, hressandi og spyrja spurninga, óagaðar, óábyrgar, hvatvísar og fl, eins og börn. Á meðan gamlar sálir geta verið rólegri, með afslappaðri lífsýn, umhyggjusamar, pirraðar, jarðbundnar, vanafastar og þola illa breytingar og fleira í þeim dúr. Væntanlega ættu þá miðaldra sálir að vera til. Það að vera gamall er ekki ávísun á þroska. Ef maður forðast allt það sem er erfitt alla ævi, og velur ætíð stuttu leiðina, þá öðlast maður ekki þroska.
Nei ég var bara aðeins að spá í þessu svona. Á að vera læra, en ég finn mér svo oft eitthvað annað gera. Hræðilegur ávani.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli