27.9.05

Klukk og afmæliskveðja

Elsku Eddímon minn, innilegar hamingju óskir með 27 ára afmælið. Megir þú hafa það gott í ellinni með mér.

Klukk sagði Bogga.. best að koma með 5 staðreyndir um mig. Líður eins og ég sé 14 ára, en það er ekkert að því.

1. Ég þoli ekki að láta koma við hálsinn á mér. Ég er mjög viðkvæm fyrir því að sjá sperrta hálsa og ef einhver er að tosa í skinnið þar og þess háttar. Ég fæ virkilega óþægindatilfinningu. Svo er ég oft í vandræðum ef ég er með trefil eða í renndri peysu, og ég get alls ekki verið í rúllukragapeysu, bara alls ekki!

2. Þegar ég var lítil þá var ég víst bara óþekk eða erfið þegar átti að versla á mig föt. Mér fannst það leiðinlegast í heimi. Og ég man eftir fötum sem ég klæddi mig sjálf í sem voru hryllingur saman, en mér var alveg sama.

3. Ég var rosalega feimin sem barn og unglingur. En það er smátt og smátt að renna af mér.

4. Mér finnst rækjur og rúsínur ógeð. Og döðlur, já reyndar allir þurrkaðir ávextir.

5. Ég gæti ekki átt heima úti á landi.

Þá ætla ég að klukka hana Guðnýju, Jóa og Hulkinn.

Engin ummæli: