3.9.05

Luffie heppnaðist vel

Við héldum luffie í dag, klæddum okkur upp í jólafötin okkar, greiddum hár og settum á okkur varalit. Við lögðum samviskusamlega á borð, dúkurinn vel straujaður af Boggu, kveiktum á bleiku kerti, Edda braut saman bleikar sérvettur og þeytti rjóma. Luffieið hófst kl. 4:00 með Íslenska Þjóðsöngnum í bakgrunninum. Í boði var súkkulaðikaka sem Edda bakaði, túnfisksalat og kex, ostar og sulta sem mamma gerði. Tinto de Verrano, diet coke og appelsínu safi. Ég fékk frá Hrafnhildi og Heiðu gjafakort í Kringlunni og frá Elínborgu Auði Hákonardóttur og Eddu Sigvaldadóttur boðskort í dekur. Takk kærlega fyrir mig!

Eftir að við færðum okkur inní betri stofuna, fengum við okkur kaffi og ísbræðing. Síðan hlustuðum við á "á skíðum ég skemmti mér, trallalalallalaaa" og "hvítu mávar" og jafnvel "heyr mína bæn" en ég man það ekki alveg. Bókin Listin að lifa gekk hringinn og las hver og ein vel valda speki. Vorum við allar betri manneskjur eftir það. Nú eins og hefð er fyrir, þá mun ég nú leggja mig eftir matinn og síðan eru partý gestir væntanlegir og og líklega munu allir svelgja í sig bjór. Ég ætla ekki í jólafötunum niðrí bæ.

Engin ummæli: