Fordómar
Hvaða áhrif hafa fordómar á líf manns sem er fordómafullur? Eru fordómar hans/hennar leið til að upphefja sjálfan sig og kalla allt glatað sem er öðruvísi en hann/hún myndi hafa það sjálfur/sjálf? Engin ein leið er rétt í lífinu og það er nauðsynlegt að fólk sé ólíkt. Afhverju ekki að virða það í staðin fyrir að úthúða og tala niðrandi um fólk sem lifir á annan hátt en maður sjálfur. Allar þessar týpur sem fyrirfinnast í samfélaginu eiga kannski ekki vel saman þegar fyrst er að gáð en í grunninn erum við mannfólkið eins. Við viljum þyggja og gefa ást, vera viðurkennd, fá að tjá okkur og svo framvegis. Allir vilja gefa út statement um sjálfan sig, en að gera það með því að tala niðrandi um eitthvað sem þú telur þig ekki tilheyra er alls ekki gott mál. Fordómar hefta mann í þroska og maður missir alla yfirsýn yfir það sem skiptir máli.
Ég bætti inn hlekkjum hér til hliðar sem eru áhugaverðir að mínu mati. Gaman að lesa pistla félagsfræðinganna til dæmis.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli