USA
Í flugvélinni á leiðinni út var kona sem vinnur með mér og hún var að ferðast með vinkonu sinni. Vinkonan lagði sig og samstarfskonan kom og settist hjá mér, ég var svo heppin að sætið var laust við hliðina á mér. Við fengum okkur slatta af bjór og spjölluðum og gerðum Sudoku og töluðum við tattoo-aða menn sem voru að fara í mótorhjólaferð (eða aðallega hún, ég hlustaði). Þegar við vorum kominn inná flugvöllinn þurfti hver og einn að fara í tjekk og það myndaðist löng röð. Það var vegna þess að það voru tekin 2 fingraför af öllum og mynd. Síðan var allt stimplað bak og fyrir. Það heyrðust endalaus stimpilhljóð í þessum grábrúna þurra sal. Bandaríski fáninn var við hvern glerklefann. Öryggismenn á hverju strái, allir starfsmenn sem ég sá voru innflytjendur, væntanlega því þetta er hættusvæði. Ég varð frekar skelkuð. Þegar ég kom að færibandinu langaði mig að henda tyggjói sem ég var með en ég fann hvergi ruslatunnu. Maður getur alveg sagt sér afhverju. Patrick sótti mig og við fórum heim til foreldra hans í Portola Walley sem er í hæðunum fyrir ofan San Francisco. Við gistum þar í 2 nætur, og fórum síðan til Bend sem er smábær í Oregon. Leiðin þangað tók 9 klukkutíma og var hún mjög falleg, fjöll og skógar. Bærinn Bend er í uppsveiflu og mjög eftirsóttur staður að mér skilst. Hann er við þjóðgarð, en í honum fórum við í 3ja tíma hjólatúr. Það var mjög gaman en órtrúlegt en satt fengum við hvorug harðsperrur. Við eyddum 2 dögum þar og síðan tók við 8 tíma akstur til bæjar sem heirir Truckee sem er nálægt Lake Tahoe í Californiu, austur af San Francisco. Keyrðum í gegnum Reno í Nevada, skýjakljúfar eins og jólatré og fullt af spilavítum. Truckee er á skíðasvæði og Bogga sagði mér að það væri flottasta skíðasvæðið í Kaliforníu. Þabbara ekkert annað. Vorum við þar síðustu nóttina og auðvitað mjög fallegt þar. Síðan keyrðum við 5 tíma til San Francisco og náðum að eyða um 4 tímum þar því ég átti flug til baka um kvöldið. Yndisleg borg, hafði komið þangað áður þegar ég var ca. 11 ára. Fórum í kínahverfið og tókum sporvagninn fræga. Í fríhöfninni á leiðinni til baka var líka mikil öryggisgæsla og enginn Ameríkani, að mér sýndist, að starfa þar. Eins og það er enginn Íslendingur, allavega nánast, sem vinnur í fiski.
Fólkið í Bend var mjög almennilegt og opið. Reyndar líka á öllum hinum stöðunum sem við fórum. En maður er óvanur því að vera skælbrosandi að panta kaffibolla af skælbrosandi starfsmanni á kaffihúsi, sem spyrði fyrst hvernig maður hafi það, og maður á að segja að maður hafi það gott og spyrja til baka. Fékk eiginlega menningarsjokk. Við hlustuðum mikið á útvarp í bílnum og þetta er alveg ótrúlegt að hlusta á fréttirnar þar og líka t.d. auglýsingar. Það er spilað 1-2 lög og svo auglýsingar í fleiri fleiri mínútur. Talsmáti útvarpsfólksins er langt frá því að vera eðlilegur talsmáti, eða í flestum tilvikum. Þetta samfélag er svo steikt að ég finn til með fólkinu sem þarf að lifa við þetta áreiti og aðstæður alla daga. Fréttirnar, ríkisstjórnina, umferðina, gylliboðin og ég veit ekki hvað. Ég var algerlega háð Patrick þarna því ég gat ekki farið neitt ein. Það þarf að fara allt á bíl. Síðan er allt svo risa stórt þarna. Ég gat nánast aldrei klárað matinn sem ég pantaði mér af disknum og einu sinni keypti ég stærstu gerðina af kaffi til að taka með, en þá fekk ég 20 únsur.. hvað ætli það sé mikið? meira en hálfur lítri held ég.
Ég týndi debetkortinu mínu úti og eyddi því ekki miklu nema að ég keypti mér hágæða (að mér finnst allavega) ferðatölvu sem heitir Gateway en ég skírði hana Bodymassage. Hún kostaði 60.000.- kall og hún er það dýrasta sem ég á.
Það er gott að vera komin á skerið þar sem ég get labbað í vinnuna og hjólað í skólann. Ég get hlustað á útvarpið í lengri tíma án þess að fá hausverk og fæ ekki valkvíða við það að kveikja á sjónvarpinu. Við höfum það ótrúlega gott á þessu litla landi í norðri. Hér er ótrúlegt líf miðað við hvað við erum fá, alveg magnað.
Það er eitt ótrúlegt sem ég verð að segja frá. Pabbi Patricks og mágur minn borðuðu saman morgunmat árið 1989 í Santa Barbara. Pabbi hans (sem er heimsfrægur innan lækningageirans) var að halda fyrirlestur um lækningatækin sem hann fann upp og þar kom fram að hann ætti vínekru. Halli mágur komst að því og átti náttúrulega ekki orð. Hefði viljað sjá svipinn á honum!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli