3.11.05

Helgi Hóseasson

Ég var komin útí strætóskýli 7:25 í morgun og þar rétt hjá stóð Helgi Hóseasson með skilti sem á stóð Hver skapaði sýkla? Við spjölluðum aðeins saman og sagði hann mér ýmislegt, m.a. það að hann væri alltaf þreyttur. Hann segist freistast til að sofa lengur en geri það ekki því hann vilji ekki hjálpa hrörnuninni. Hann fór með kvæði um Rangá eftir Jón Ólafsson skáld sem var frá Austfjörðum, en þaðan sagðist hann vera ættaður. Hann blótaði Ameríku og Sjálfstæðis- og Framsóknarflokknum. Ég sagði honum að ég hafi verið í Bandaríkjunum fyrir stuttu og varð hann öll eyru. En þá kom strætó og því miður gat ég ekki talað við hann lengur. Hann er svo sannarlega mótmælandi Íslands.

Engin ummæli: