13.11.05

Imbakassinn

Ég fór að velta því fyrir mér hvernig lífið væri ef það væri ekkert sjónvarp. Hvað væri öðruvísi ef við hefðum ekki Jay Leno né Fólk með Sirrý? - Nei það væri virkilega spennandi að sjá hvernig lífið væri þá. Ímyndunaraflið væri miklu meira og fólk myndi vera meira andlega þenkjandi. Myndi kannski á haustkvöldum klæða sig í eins föt eða skrifa klámsögur. En það er nú líka gert í dag, ég hef öruggar heimildir fyrir því. En ef imbinn væri ekki til staðar væru draugar í hverju horni, fólk myndi tala saman í vísum og sterk félagsleg tengsl væru á milli manna. Fólk myndi vera iðið við ýmis áhugamál eins og að sauma, mála og sitthvað fleira. Pottþétt líka eitthvað sem ekki er gert í dag, því við höfum verið svo upptekin við að horfa á sjónvarpið í stað þess að brydda uppá einhverju nýju. Maður er manns gaman. Ég held að það gleymist of oft.

Engin ummæli: