22.11.05

Skipulag

Ég keypti mér gula áberandi dagbók í dag til að skipuleggja og plana. Ég ætla (já!) að skrifa plan u.þ.b. eina viku fram í tímann og reyna að fylgja því eins og ég get. Ég hef milljón sinnum skrifað niður eitthvað plan og ætlað að breyta öllu, einn tveir og sjö, til hins betra. Það hefur aldrei gengið betur en svo að ég hef gleymt byltingarplaninu strax daginn eftir. En nú hef ég hafið stríð í hænuskrefum gegn frestunaráráttunni og bölvaða kvíðanum sem honum fylgir með dagbók að vopni. Fínt að byrja á áramótaheitinu í nóvember.

Engin ummæli: