Lífið
Ég hef komist að því að það er lífsnauðsynlegt fyrir mig að hreyfa mig. Ég er byrjuð að æfa í Hreyfingu og mér hefur ekki liðið svona vel í langan tíma. Ég hef líka passað mjög vel uppá matarræðið og drekk nánast bara vatn og Fjörmjólk. Weetabix á morgnana. Gos og sælgæti nei takk. Ávextir, léttpopp og tyggjó já takk. Drekk nánast ekkert kaffi lengur. Fékk líka þetta fína heilsu te í jólagjöf sem ég ætla að drekka í staðin. Tek vítamín og núna byrjuð að æfa. Föt orðin of stór.. ólán í láni.
Æ svo þessar bévítans pillur sem ég keypti á ebay. Þær eiga að auka brennslu. Keypti óvart 10 dollur.. kostaði 10 þúsund kall! Ef þú vilt kaupa þá ertu vinur minn - dolla á 1000 kall. Ég á enga peninga og sit uppi með þennan farm. Mamma var svo góð að kaupa eina dollu. Ég er viss um að hana hafi ekkert langað í, bara viljað hjálpa vitlausri dóttur. Einn morgun í október, með nýlegt vísakort í veskinu, vafrandi um á netinu, sótti að mér yfirgengileg löngun í að kaupa eitthvað á ebay. Skynsamlegt. Og ég keypti pillur og skó. Skórnir eru fínir, en maður kaupir ekki skó á netinu. Ég var bara heppin að þeir pössuðu. Og megrunarpillur, já eða pillur sem eiga að auka brennslu... ég veit, ég veit.
Heiða ætlar að lána mér bók um fjármál heimilisins. Ég hlakka til þann dags þegar ég kann að fara með peninga.
Las eitthvað yfir jólin. Einhverskonar ég eftir Þráinn Bertelsson, Í fylgd með fullorðnum og þýdda bók sem heitir Heppin, man ekki höfund. Er að lesa Konan í köflótta stólnum. Hef gluggað í Gæfuspor, gildin í lífinu og Með lífið að láni sem var í pakka með náttfötum frá Ingu systur og fjölskyldu. Ég fékk Matreiðslubók Nönnu frá mömmu og pabba sem er frábær eign. Verst að ég hef ekkert nema pillurnar að éta þennan mánuðinn, lítil eldamennska þar.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli