Handa-Dansarinn
Verð nú að minnast á hláturskastið sem ég fékk áðan með Eddu. Ég missti mig alveg, hló hástöfum og veinaði.. að listdansskautadansara. Þvílíku handahreyfingarnar hjá manninum. Svo ímynduðum við okkur að hann væri ekki á skautum heldur væri að dansa svona í venjulegum skóm og þá var ég gargandi af hlátri. (Hversu einfaldur getur maður verið?)
Verst að eiga sér uppáhalds skautadansara en vita ekki hvað hann heitir. Hann var í svörtum búning með svona glimmeri. Held að hann eigi eftir að ná langt, hvort sem er á hálum ís eða á dansgólfi listhneigðra gjörningamanna.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli