Boxa

Fór núna í kvöld í þriðja skiptið með bróður mínum í box uppí Hafnarfjörð og það er mjög gaman skal ég skrifa hér og segja. Þetta tekur mjög á og harði naglinn kennarinn er frá Kúbu. Hef ég heyrt að ef maður mætir seint verður manni refsað, hugsanlega 100 armbeygjur eða álíka.
Enn á Paint hug minn allan í smá stund annað slagið og það sést nú vel að reynsla mín og upplifanir hafa áhrif á sköpunarverkin. Njótið og lifið heil.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli