Pâques œuf
Stórglæsilega vel heppnuð sumarbústaðaferð með fjölskyldunni. Spóastaða ættin mætti í gærkvöldi (fös. langa) í ömmubæ og þar voru slidemyndum frá ca. 1968-1972 varpað uppá tjald og hlátrasköll hljómuðu um alla sveit. Karlmenn með kótelettur í kinnum og konur með túperað hár og í röndóttum heimasaumuðum dröktum. Mamma og pabbi voru algjör bjútís. Svo var spilað á píanó og gítar og sungið, grín og glens. Alveg frábært. Fór líka í fótbolta við Ingvar og Sigga "litlu" frændum. Ég notaði snjóbolta til að eiga séns í Ingvar (kastaði sem sagt snjóbolta í andlitið á honum til að gera óheiðarlega tilraun að ná boltanum af honum) og það virkaði þrusu vel! Kastaði líka snjóbolta í Sigga markmann á meðan ég reyndi að skora.. Gaman hjá okkur, kannski var ég ekki albesta fyrirmyndin með þessari hegðun, en þeir vita alveg hvað ég get látið fíbblalega. Gaman af því... :)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli