19.5.06

hás músík

Horfði á júró í surprise-grill-partýi fyrir bróðir og mágkonu, þau áttu 10 ára brúðkaupsafmæli. Voða gaman, þau glöð og kát enda kraftaverk í dag að eiga 10 ára hjónaband að baki.

Ég byrjaði minn fyrsta dag í vinnunni á að hringja mig inn veika. Var með hnút í maganum yfir því, en svona gerist. Vann fimmtudag og líst mjög vel á þetta, ca 2 klst. útivera, hálftíma lúr í hádeginu, frítt að borða, og voða sæt börn flest. En í dag mætti ég og var rekin. Jebb. Sögð mig ekki vera hæfa. Vissi ekkert hvað ég ætti af mér að gera. Fór á bókasafnið en það var lokað sem var ekki til að bæta daginn.

Engin ummæli: