Kærulaus í dag

Ég vaknaði of seint og mundi drauma sem mig dreymdi í nótt, m.a. huganlegt BA verkefni.. en ég var ekki viss hvort það hafi verið draumur eða hvort að ég hafi verið að tala um það í gær, en ég átti minningu um að hafa rætt hugmyndina við aðra, en sumt sem ég sagði í samræðunum var algjört bull þannig líklega hef ég ekki rætt þetta við neinn og allt draumur EN ég er líklega komin með BA verkefnið uppí hendurnar sem ég mun byrja á fljótlega eftir próf, eða allavega bera það undir leiðbeinandann.
En ég er ansi kærulaus hvað varðar prófið á föstudag, ég hlakka svo til helgarinnar og júróvision og er að reikna út hvað mér tekst að borga niður af skuldum og skoða hvað ég skulda hjá lín og pæla í hvað mig langar að verða þegar ég verð stór og að mig langi til að fara í bootcamp næsta vetur og magadans og afró. Og að ég fari kannski út til Englands í sumar og helgarferð næstu önn og sólarlandaferð í byrjun 2007. Ó svo margt.. ó svo margt. En nú verð ég að lesa.
Eitt að lokum; Hvað varðar hjúskaparstöðu og streitu þá þjást giftar konur og einhleypir karlar hvað mest af streitu, á móti þá mælist streita hjá einhleypum konum og giftum körlum mun minni. Sem er nokkuð athyglisvert þar sem ímyndin um hjónaband er sú að fyrir konur sé það takmarkið í lífinu, að ná í karl til að vera hamingjusamur, viðurkenning og rómantík.., en ímyndin um hjónaband fyrir karl er þvingun, frelsissvipting, vesen, tuð og o.s.frv.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli