1.6.06

Áhugavert

Fékk þetta í tölvupósti og finnst áhugavert. Kemst því miður ekki:

Föstudaginn 9. júní heldur Dr. Jeffrey Jensen Arnett rannsóknaprófessor
við Clark University í Bandaríkjunum erindið: Að komast í tölu fullorðinna
á 21. öldinni: Ný og lengri leið til fullorðinsára.

Fyrirlesturinn er haldinn á vegum rannsóknasetursins "Lífshættir barna og
ungmenna" við Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands og uppeldis- og
menntunarfræði við Félagsvísindadeild HÍ. Allir eru velkomnir á
fyrirlesturinn sem hefst kl. 12:15 í Odda, stofu 101 við Háskóla Íslands.

Um heim allan er skólaganga ungs fólks að lengjast, það giftist síðar og
er eldra þegar það eignast börn sín en fyrir 50 árum. Í fyrirlestri sínum
greinir Dr. Arnett frá því að "nýtt aldurskeið" (18-29 ára) sem hann
nefnir á ensku "emerging adulthood" hafi þróast milli unglingsára og fyrri
hluta fullorðinsára. Hann skýrir hvers vegna þetta tímabil hefur myndast
sem sérstakt æviskeið og leitar svara við spurningunum: Hvers vegna tekur
það ungt fólk lengri tíma að "fullorðnast" og við hvað fæst það á þessum
árum frá síðari hluta unglingsáranna fram til þrítugs?

Dr. Arnett er rannsóknaprófessor við sálfræðideild Clark University í
Massachusettsríki í Bandaríkjunum. Skólaárið 2005-2006 hefur hann verið
Fulbright vísindamaður við Kaupmannahafnarháskóla. Fræðaáhugasvið hans er
hvaðeina sem viðkemur því að fullorðnast (aldurskeiðið 18-29 ára) og mun
hann vera fyrstur til að tefla fram hugtakinu "emerging adulthood". Önnur
áhugasvið eru fjölmiðlanotkun á unglingsárum, viðbrögð við
tókbaksauglýsingum og það sem hann kallar "the psychology of
globalization".

Dr. Arnett hefur birt fjölda fræðigreina um þennan aldurshóp auk bókanna:
Adolescence and Emerging Adulthood: A Cultural Approach (2007, Prentice
Hall) og Emerging Adulthood: The Winding Road from the Late Teens Through
the Twenties (Oxford University Press, 2004). Hann hefur einnig ritstýrt
bókinni: Emerging Adults in America: Coming of Age in the 21st Century
(APA Books, 2006). Þá er dr. Arnett ritstjóri tímaritsins Journal of
Adolescent Research. Jafnframt ritstýrir hann tveimur alfræðibókum: The
International Encyclopedia of Adolescence (2007, Routledge, 2 bækur sem
taka til unglingaskeiðsins í öllum heimsálfum) og The Encyclopedia of
Children, Adolescents, and the Media (2007, Sage Publications, 2 bækur).
Nánari upplýsingar um dr. Arnett og rannsóknir hans er að finna á
vefsíðunni: www.jeffreyarnett.com.

Engin ummæli: