3.6.06

Svo ástfangin

Það er nú bara svo gaman að vera ástfanginn og lífsglaður. Í dag varð ástin á vegi mínum, en já Ýr er ástfangin af nýja bílnum sínum! Æði pæði. Er að leita að nafni hér. Hann er grænn.. æ nenni ekki að gefa upp meira af tæknilegum upplýsingum. Svo er ég líka voða fangin af ást því sumarið er komið og ég fór á djammið í gær, sem hefur ekki verið svona skemmtilegt í langan tíma. Það var meira segja frægur maður að reyna við mig! Ómægod skiluru. En ég fór mína leið, langar ekki baun í eitthvað kossaflens. Held ég. En strætó var byrjaður að ganga þegar ég tók leigubíl heim með henni Ernu minni. Vá við skemmtum okkur svo vel við að leita uppi eldri mönnum sem ættu einhver börn og svona handa okkur, því þá þyrftum við ekkert að ganga í gegnum það að eignast börn, vera ólett og tala rosalega mikið um eitthvað, börn, og æðislega fyndið að eitthvað og bragðið af tómötum er bara allt öðruvísi núna o.s.frv. En ég ætlaði að koma með sögu um mig að ég byggi í Jórufelli 11, íbúð frá féló, 3 börn með 3 mönnum og ég væri 33 ára. Því þá vissi ég að maðurinn sem vildi mig þannig myndi elska mig skilyrðislaust. En svo fórum við bara að elta sjónvarpsógeðið og gleymdum hösl-bakgrunnssögunum okkar. En já í lokin (þegar frægi maðurinn var að reyna) fórum við að ljúga að við s.s. ég og Erna værum par til að láta þá hætta að reyna við okkur. Við erum svo flippaðar.

Engin ummæli: