Þjóðkirkjan
Ég las í Fréttablaðinu í dag um mæðgin sem komust að því þegar ferma átti strákinn, að þau væru skráð í kaþólsku kirkjuna. Samt sem áður eru þau mótmælendatrúar. Furðulegt finnst mér að maður er skráður í trúarhóp. Afhverju er það sjálfsagt ferli, sem maður þarf sérstaklega að skrá sig úr ef þess er óskað. Réttara þætti mér að þeir sem vilji skrá sig í stjórnmálaflokka, þjóðkirkjuna og þessháttar félagsstarfsemi að hver og einn sæki um það ef hinn sá sami óskar þess.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli