18.10.06

Andlaus og dofin

Ég er eitthvað voða tóm í hausnum. Dofin og súr, en þó dugleg að gera það sem þarf að gera, fór með nokkra kassa í geymsluna, breytti herberginu mínu þannig það er orðið ágætlega kósí. Fór í bónus og verslaði í matinn og svona. En hef litla eyrð í mér til að læra. Ekki nógu gott, en á morgun verður kýlt á það. Ræktin kl. 8:30 með Sólveigu, svo brunað á Þjóðó. Þarf að mæta þangað oftar.

Talaði við Fabi og lofaði henni að heimsækja hana á næsta ári til Brasilíu. Hún sagði mér að giftast bróður kærasta síns og sendi mér mynd af honum. Okkur langar að hjóla saman á ljótum hjólum og drekka Coke light og eat like swines. Ég stakk uppá að ég myndi bara flytja út, vorum mjög góðar vinkonur á Ítalíu. Hlóum mikið og svona. Sagðist þá fara í fullt af lýtaaðgerðum, just for fun. Það er eins og fara útí búð að versla og að kíkja til lýtalæknis. Verður maður ekki að aðlaga sig að siðum þess lands sem maður býr í?

Æ, hvaða leiðinda ástand er þetta. Stundum er þetta bara svona. Up's and down's. Þá liggur vonandi leiðin bara upp núna. Já já.. kemur.

Engin ummæli: