11.10.06

Hressandi draumur

Mig dreymdi í nótt að ég hafði einhverja skordýrasýkingu, þar sem augun voru full af gulum flugum og ég spýtti út úr mér endalaust mikið af allskonar lituðum lirfum. Afskaplega gott að vakna í morgun en ég var s.s. á spítala í starfsnámi sem félagsráðgjafi og þar var skordýrafaraldur a einni deild en ég var eina manneskjan sem lenti í þessu. Ég vissi að það væru til lyf við þessu en bjáninn læknaneminn fann ékki lyfin og ég var alveg að fara yfirum. Oj bara, hvað er heilinn að spá að detta svona viðbjóð í hug?

Engin ummæli: