5.11.06

Locate Lenny

Náði að klára 15 level í fyrstu tilraun í þessum leik. En þú?

Ágætt að frétta, gott að líða bara vel og vera ekki með óþarfa áhyggjur. Þessi tími ársins er versti tími ársins að mínu mati, kuldi, vindur og myrkur. En hefur ekki mikil áhrif á mig núna. Reyni að borða hollan mat og hreyfa mig, stunda námið, sem er bara nokkuð gaman. Er að vinna í BA-ritgerðinni og virðist allt ætla að ganga upp.

Pabbalingur hefur boðið mér utanlandsferð á næsta ári og vill styrkja Brazilíuferðina. Oh það væri ekki leiðinlegt. Vil þá einmitt fara eftir ca. ár og komast burtu á þessum tíma árs. Núna er 22-30 stiga hiti þar. Gaman að stefna að einhverju skemmtilegu.

Er núna í vinnunni og heyri gömlu konurnar frammi tala um hvað Ýr sé skrítið nafn. Skondið.

Jæja bless í bili...

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ég komst í level 20 án þess að ruglast:) hehe...

skraddi sagði...

Sko ég vissi að þú værir gáfaðri en ég að öllu leyti.