Trúður blokkarinnar
Hvað haldiði?
Ég læsti mig úti áðan sem er nú bara smáræði við það sem hér verður lýst. Ég var að fara að hleypa bébbans kettinum illa sem býr hérna uppi inn, til að Vífill kæmist út. Lokaði svo hurðinni á eftir mér.. ATH! Ég var klædd í ljósblá snoopy náttföt, með tannkrem á bólunum, hárlit í hárinu og með BÓNUSPOKA á hausnum!!! Og það var greinilega afmæli einhversstaðar í húsinu og gestir streymdu upp og niður stigana. Ég var svo sannarlega að vonast til að deyja á staðnum.
8 ummæli:
Þetta virðist vera algengt vandamál hjá ykkur. Bið að heilsa Víbbló.
Hahahahahaha einmitt þess vegna sem ég tek ALLTAF húslyklana með mér...þótt ég sé bara að fara með ruslið eða ná í fréttablaðið ;-)
Já Ýr mín, hann gestur páll er duglegur í að læsa okkur úti:)
Skelfileg reynsla! Sterk bein þola meira og ég held að þú hafir fest svefn eftir þetta - hægt að hlægja eftirá. En hvernig fór þetta svo, hver kom svo með lykla og svona...
Ég beið fríkin í 1 og 1/2 tíma eftir Línu.
smá hvít lygi skaðar engan;)
Æ, skal nú viðurkenna að ég var að ýkja. Það er satt að ég læsti mig úti og var klædd í snoopy náttbuxur, en var í lopapeysu við (smart). En það var ekkert tannkrem né bónuspoki og ekkert afmæli. Mamma kom innan skamms og reddaði mér.
hahah góð saga engu að síður,
Skrifa ummæli