4.12.06

Tómamít

Tímamót framundan, skruddum lokað og aurar inná bók. Nei, meina mínustalan í heimabanka lækkar.

Svo er Lína líklega að flytja til Danmerkur næsta haust. Hvað geri ég þá?

Skoðaði leigulistann og mér hryllir við leiguverðinu. Þó maður eigi ekki bót fyrir rass gæti ég fengið ofur íbúðarlán en ég er ekki að fara að kaupa. Uss nei. Ég fékk mér tímaritsáskrift í fyrra (sem ég er reyndar ekki lengur með) og það er nógu mikil skuldbinding. En ég á kött sem ég er skuldbundin og það er nóg fyrir mig, allavega í bili.

Hef vafrað um og skoðað atvinnuauglýsingar. Séð hitt og þetta sem ég gæti hugsað mér að vinna við, en þó er ekkert sem stendur uppúr spennandilagað séð. Væri til í að leysa einhverja/einhvern? af sem fer í fæðingarorlof. Já - skuldbindingarlega séð.

Samt...

Væri ekki amalegt að geta sagst hafa lifað eins og þessi í tæpt ár. Hafa selt allt draslið og keypt one-way ticket to Brazile. Vinna sér inn aur, skemmta sér og safna smátt og smátt fyrir fari aftur heim.

Ef maður hefur ekkert til að deyja fyrir hefur maður ekkert til að lifa fyrir... draumar draumar... Tala minna, gera meira.



Markmið: Á næstar ári ætla ég að hætta að vera svona mikið sófadýr eins og ég hef verið hér í Bogahlíð.

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hmmmm.....Skil hvernig þér líður. ;)

skraddi sagði...

Verð að fara að taka mig á og mæta í ræktina með þér sollulingurinn minn :)

Nafnlaus sagði...

Trúðu mér,ég skil þig vel! Míns fékk þessa þörf og það endaði með 8 árum úti hehe. Mitt eina ráð er go for it! (Er þó ekki að segja að ég VILJI losna við þig af landinu! lol)

Nafnlaus sagði...

Úfff, ég hef líka verið á leiðinni í ræktina síðan í júlí. Fór reyndar um daginn en það var ekkert laust bílastæði svo ég fór bara heim.

Halla sagði...

Ef mann langar til að leita uppi ævintýr og lífsreynslu þá er ótrúlega gaman að skoða þennan vef:
http://anyworkanywhere.com/
Reyndar geturðu sennilega ekki tekið köttinn með en hann getur örugglega komist eitthvað í pössun í nokkra mánuði:)

Ekkert smá fyndin lýsingin af því þegar þú læstir þig úti hahaha hjúkk að það var hliðrun á sannleikanum
Kveðja,
Kveðja frá næturdýrinu Hal

Halla sagði...

bara svo það komist örugglega til skila þá sendi ég tvöfalda kveðju með kommentinu:)