7.1.07

Geðveikt!

Horfði á Kastljós áðan, og ég verð að segja að mér fannst þátturinn mjög merkilegur, viðtal við Unu Margréti Jónsdóttur dagskrágerðarkonu á Rás 1. Hún talaði opinskátt um áráttu- og þráhyggju sína og finnst mér það mjög áðdáunarvert þegar einstaklingar tala opinskátt um persónulega reynslu af geðrænum vandamálum sínum. En einmitt um það fjallar lokaritgerðin mín, hvernig umæða um málefni geðsjúkra hefur breyst. Ég skoða innsendar greinar í Morgunblaðið í kringum aldarmótin síðustu sem eru um geðheilsu-meðferðaúrræði og hvernig kröfur um áherslur í meðferð hafa breyst. T.d. hefur notandi geðheilbrigðisþjónstu fengið stöðu innan geðdeildar LSP sem trúnaðarmaður þannig að hann kemur óánægju sjúklinga til skila því sumir sjá sér ekki fært að tilkynna e-ð sem það er óánægt með. Einnig fara einstaklingar sem hafa reyndslu af geðheilbrigðisþjónustu í fyrilestur til læknanema sem er einn þáttur í þeirri byltingu sem hefur átt sér stað, frá því að vera einstaklingur sem ekkert val hafði yfir í það að geta haft áhrif á meðferð sína. Hver getur náð bata við óþægilegar aðstæður og þegar maður er ekki tekinn alvarlega? Maður þarf að hafa trú á sjálfum sér og það hefur verið sannað að þeir sem hafa trú á að þeir geti haft áhrif á örlög sín upplifa sig heilbrigðari en þeir sem ekki trúa því að þeir hafi stjórn á eigin lífi.

Einnig langar mig að minnast á fyrirlestur í Geðheilsufélagsfræði þegar gestafyrirlesarar frá Hugarafli komu og fræddu okkur um reynslu þeirra af geðsjúkdómum. Einn strákur sagði sína sögu sem geðklofi, og það var magnað að hlusta á hann. Hann gerði óspart grín að sjálfum sér, hvað hann gæti orðið klikkaður þegar hann fær "köstin". Gerði grín að föndri á geðdeildum og hvernig hann lék á geðlækna þannig að hann virtist vera heilbrigðari en hann var í raun og veru. Dæmi um það var að í stað þess að segja að Jesú hafi komið til sín og útnefnt sig sem sendimann hans að segjast vera uppfullur af kærleik og vilja láta gott af sér leiða. Maður sá engan vegin á honum að hann ætti við þetta að stríða. Þessi fyrirlestur var stórskemmtilegur.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Það styttist í að ég geti rölt upp á bókhlöðu til að leigja BA ritgerðina þína, hlakka til! Gangi þér vel að klára.

skraddi sagði...

Takk fyrir það, hlakka til að verða hard-working-dame eins og þú.

Arni sagði...

Sá einmitt þáttinn - góður. En leti er þett á vefnu... ekkert krassandi að geras...