Ég er búin að ákveða það! Það er komið á hreint! Ég ætla að gerast fjallgöngugarpur! Fórum á Esjuna í gær og ég sem hélt að ég væri í fínu formi en nei nei.. ég var orðin móð on the spot nánast! En það þýðir ekki að gefast upp, það sem drepur mann ekki á víst að styrkja mann! :) Reyndar fékk ég hælsæri á begge to þannig ég komst ekki alveg upp á toppinn en var mjög nálægt því.. -kemur. Stefnan er að kaupa svona gervi-skinn og bólstra lappirnar og fara aftur á Esjuna í næstu viku. Þá sko skal það takast.
Í kvöld eftir vinnu ætlum við pæjurnar í þjónustunni að fá okkur öl.. og svo á morgun er óvissuferðin ógurlega!! Stuð bara og góða helgi evríbodý! =)
30.5.03
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli