23.7.03

3 menn fóru á hótel og herbergið kostaði 30 dollara.

Hver maður borgaði 10 dollara og fóru þeir saman inn í herbergið sitt. Stuttu seinna fattaði hótelstjórinn að herbergið kostaði bara 25 dollara, svo hann sendi herbergisþjóninn upp með 5 dollara til að borga þeim tilbaka.

Herbergisþjónninn kunni ekki að skipta 5 dollurum jafnt á milli þriggja manna svo hann gaf hverjum þeirra 1 dollara og hélt 2 sjálfur. Þetta þýðir að mennirnir þrír borguðu 9 dollara hver fyrir herbergið sitt sem eru alls 27 dollarar + 2 dollarar sem herbergisþjónninn hélt eftir sjálfur, alls 29 dollarar.

Hvað varð um dollarann sem vantar uppá?

Engin ummæli: