30.11.03

Heil og sæl öllsömul. Ég er algjörlega búin að snúa sólarhringnum við og er sprækust þegar klukkan er að nálgast miðnætti, þá vaknar mín! ...veit nú ekki hversu gott það er.. en ég hef verið að vinna að þessu blessaða verkefni og gengur svona ágætlega.. en lítur samt út fyrir að öll helgin fari í þetta og meirihluti af mánudeginum líka... :( Svo er bara próflestur í framhaldi af því. Og vinna hjá póstinum eftir próf.. og svo loks jólafrí!! Vildi óska að ég gæti eytt deginum á morgun í að dundast við að setja upp seríur og búa til kransa.. en það verður bara að bíða til seinni tíma.. þegar ég verð hámenntuð og fjandi rík! :D Verður lítið af jólastússi hjá mér fyrir þessi jól....

Engin ummæli: