8.11.03

Hvað haldið þið!? Ég er núna á mínum gamla vinnustað að svara í símann og hjálpa bágstöddum! Og það gengur bara þokkalega !! Ekki svo vitlaus, ha?! Allir starfsmenn eru í einhverju prógrammi í Hveragerði, og ÉG má fara þarna uppeftir í kvöld og vera memm! Farið verður á Fjöruborðið á Stokkseyri og svo verður örugglega tjútt og stuð á Frost og funa þar sem nóttinni verður eytt (ekki til einskis)... það verður gaman ;)
Í gær náðum við svona að mestu leyti að klára ritgerðina sem á að skila á þriðjudag, þarf aðeins að laga einn kaflann og skrifa niðurstöðurnar.... :D

Engin ummæli: