12.4.04

Komin með rótsterkt kaffi og nú skal mín skrifa hérna! Það er orðið þannig að ég er að pína mig til að setjast hérna við og skrifa og eitthvað.. svo er ég viss um að enginn lesi! En það verður bara að hafa það, þó ég skrifa og les þetta ein..

en allavega þá var nú gott að lifa um páskana.. súper gott páskafrí! Haldið var austur fyrir fjall á Röðul, ég og Jói, á föstudag og þar fyrir voru mamma og pabbi. Við fengum okkur í gogginn og svo steinsofnuðum í sófanum og þegar vaknað var var ekki seinna vænna en að undirbúa kvöldmatinn.. hryggur og kjúlli á grillið og með öllu mögulegu borið fram. Namminamminamm. Síðan spiluðum við við kertaljós á spil og scrabble og kínverska skák og ég veit ekki hvað og hvað og hvað.

Á laugardaginn fóru m&p í bæinn því m þurfti að vinna en þá komu tengdó í staðin :) Kristbjörg og Siggi og Eysteinn litli bróðir Jóa. Hver á eftir öðrum skellti sér útí skurð í baðkörin sem þar eru.. og haldið áfram að borða gotterí. Auður átti leið um sveitasæluna og kíkti í kaffi með Gabríel, Baldvin og son hans líka, sem ég man reyndar ekki hvað heitir :o/ En það var nú bara kósí. Önnur veisla um kvöldið, læri með grilluðum kartöflum og rauðvín og ég veit ekki hvað og hvað. Svo var enn stíf notkun á baðkerunum og spilað og spjallað. Við komum svo í bæinn í gær, sunnudag, til að athuga með hann Vífil litla sem fékk bara matinn sinn útá tröppur en hann var nú heppinn þar sem veðrið var ágætt.. en jihdúdda hvað hann var glaður að fá okkur aftur heim. Greyiskallinn.

Í dag er stefnan tekin á (magi, rass og læri) göngutúr.. svo hef ég ekkert náð í Guðný.. veit ekkert hvað hún er.. en ætla að reyna að hitta á þau í dag!

jæja gott í bili.. ætla að fylla aftur á kaffibollann.... ;)

Engin ummæli: