4.11.04

Bahaha... sá mann detta um bókaskáp hérna í þjóðarbókhlöðunni. Skápurinn á hvolf og bækur útum allt! Ég er vond að hlægja í hljóði að honum, vissi ekki, þó með miklum klaufaskap, að hægt væri að detta um heilann bókaskáp. Svona getur lífið verið.
Innfluttu danirnir sem Jói sér um eru komnir, og víst hlaðnir áfengi. Ég sagði við Láru áðan á msn að vonandi lifði ég þessa helgi af. Hún sagðist þá bara lesa minningargreinar um mig í mbl.is eftir helgi. En þeir eru vígalegir, hef ekki hitt þá enn, en hef séð myndir.

Er komin með næstum fimm blaðsíður af efni í ritgerð um firringarkenninguna hans Karl Marx... og best að halda áfram!

Engin ummæli: