Að vera þakklátur fyrir það sem maður hefur er engin klisja...
Maður veit aldrei hvað gerist og maður þarf að vera þakklátur fyrir það sem maður hefur. Ef þér líður illa og heldur því fram að það sé þessu eða hinu að kenna, þá held ég að það sé ekki rétt. Það sem skiptir máli er hvernig þú bregst við hlutunum. Ef fíflunum fjölgar í kringum þig þá þarftu að líta í eigin barm. Það er enginn fullkominn.. og sama hvað þú pirrast og gargar.. þá verð hvorki ég né nokkur annar FULLkomnari.. (Ég og þessi annar dettum kannski í það og verðum blindFULL, því við þolum ekki að vera edrú í kringum þig.. en það er önnur uppspunnin saga.) Hamingjan felst í svo hversdagslegum hlutum, virka í samfélaginu, að tilheyra, þykja vænt um þá sem standa manni næst. Lífið er ekki ein rússíbanaferð þar sem allt er rosa jolly og happy crazy. Maður þarf að staldra við og pæla.. bíddu ég er bara meingölluð mannvera eins og allir hinir. Ég geri mistök.
Ég er rosalega þakklát fyrir það sem ég hef... :)
En að allt öðru. Ég og Jói erum að fara núna seinnipartinn á hótel nesbúð og gistum þar í nótt til að halda uppá tveggja ára afmælið okkar.. vei, gaman gaman... Ætlum að eta þarna á veitingastaðnum, fara í pottinn og hafa það huggó. oh.. hlakka til!
13.11.04
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli