16.12.04

Góðan dag! prófið er á morgun og nú skal ég heldur betur sitja við. En fyrst að blogga!

Á síðu Spámannsins er hægt að finn persónuleikatré sitt og mundi ég eftir því þegar ég las um hrísluna hennar Guðnýjar :o)

Ég er t.d. grátvíðir ....
Hér er á ferðinni falleg en oft á tíðum döpur manneskja. Hún er aðlaðandi og mjög skilningsrík, hrífst af fegurð og smekkvísi, og býr yfir góðu innsæi. Manneskjan nýtur þess að ferðast, er dreymin en eirðarlaus, og er frekar duttlungafull þótt hún sé heiðarleg.
Hún er erfið í sambúð, enda kröfuhörð, þótt hægt sé að hafa áhrif á hana. Hún þarf förunaut sem styrkir hana. Ástarmálin valda henni oft angist.

En svo er Auður Fura..
Manneskjan leitar í þægilegan félagsskap, býr yfir ómældum styrk og lagar líf sitt að sínum þörfum. Hún er athafnasöm og góður félagi, þótt hún sé ekki alltaf beint vinaleg.
Manneskjan á auðvelt með að verða ástfangin en ástríðan endist sjaldan lengi. Hún gefst fljótt upp. Hlutirnir þurfa að vera fullkomnir og því auðvelt að verða fyrir vonbrigðum. Manneskjan er þó traust og hagsýn að eðlisfari.

Valhnetutréð Heiða...
Manneskjan stendur föst á sínu og er erfitt að skilja því hún er mjög mótsagnakennd. Hún er oft sjálfhverf og gefur ekki eftir, en á móti kemur að hún er bæði göfuglynd og víðsýn.
Það er erfitt að segja til um viðbrögð hennar. Manneskjan er hvatvís og hefur mikinn metnað. Hún er snjöll, en erfið og ósveigjanleg í samskiptum. Hún er mjög afbrýðisöm og ástríðufull. Margir dást að henni, en hún er langt frá því að vera allra.

Hrafnhildur er Kýprusviður...
Hér er á ferðinni sterkbyggð manneskja sem býr yfir aðlögunarhæfni og tekur því opnum örmum sem lífið hefur upp á að bjóða. Hún er bjartsýn að eðlisfari og sækist eftir viðurkenningu, oftar en ekki í formi fjármuna.
Manneskjan er ástríðufullur elskuhugi sem getur verið erfitt að fullnægja. Hún er trygg en skapbráð, getur verið smámunasöm en jafnframt kærulaus, og er á stundum svo til óviðráðanleg.

Jói og Edda eru Heslihnetutré...
Manneskjan býður af sér góðan þokka, gerir litlar kröfur og er mjög skilningsrík. Hún veit hvernig hún á að hafa áhrif á fólk og berst fyrir málstað sem hún trúir á.
Manneskjan er vinsæl en skiptir oft skapi. Í ástum er hún óútreiknanleg en heiðarleg og umburðarlyndur félagi. Hún hefur sterka réttlætiskennd.

..og svo mætti lengi telja (á svo obboslega vini) Ætli það sé eitthvað vit í þessu?

Engin ummæli: