Blaðrið mitt um bloggflóruna
Blaðraði á guðnýmín um blogg-gerðir. kópí og peist:
Ég segi að það séu til ýmsar gerðir af bloggum.
1) Fólk sem opnar sig, segir hvað það er að hugsa og upplifa. Spyr sig og skellir fram spurningum og hugleiðingum.
2) Yfirborðskennt: Svo fór ég í búðina og þurfti að bíða geeeeðveikt lengi í röðinni:(:(:(:(:( *grát*
3) Koma upplýsingum á framfæri.
4) halda dagbók fyrir sig, vini og ættingja.
5) Skrípasíða: ég vaknaði seinnipartinn og hugsaði með mér hvað það væri gott að fara í hreinni nærbuxur og skrifa nokkrar línur í tölvuna og fyrir framan tölvuna ég settist og ritaði "Ég vaknaði seinnipartinn og hugsaði með mér hvað það væri gott að fara í hreinni nærbuxur og skrifa nokkrarlínur í tölvuna" Forsætisráðherran :)
6) Töffarinn eða Grúví gellan, sem fjalla um hvað þau eru sniðug og hnyttin. Höndla vel næstum allar aðstæður, og fávitar verða á þeirra vegi. En stundum gera þau sjálf eitthvað ókúl sem er svo "fyndið" því þau eru svo kúl! The incrowd.
og kannsi eitthvað meira.. sumir blanda öllu saman... Ég get haft gaman af eiginlega ölllum þessum gerðum, nema því yfirborðskennda. (nema að það sé t.d. litla frænka eða eða frændi)
svo kannski líka fólk sem er að reyna að koma sér á framfæri.. selja sjálfan sig og reyna að fá athygli.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli