Listin að selja
Ég er ekkert þreytt þegar ég á að fara sofa. hvað er í geingi egentlig??
Allt er nú list! List hér list þar... hmmm. Ég veit ekki. Maður sem safnar hori í krukku: LIST ? Og konan sem var nakin heilan dag. Sá aðeins af kastljós- viðtali við hana þegar það var endursýnt um kl. 23:00 en það var lækkað niður talið, svo ég veit ekkert hvað hún var að tjá sig um þennan nektardag sinn. Missti alveg af þessu, hún var líka á forsíðu DV. Skemmtilegt hvað sumir hlutir fara alveg framhjá manni þegar maður er upptekinn af öðru. Ég er því fegin. Sama með Valentínusardaginn, konudaginn o.s.frv. Þessir dagar eiga örugglega áhugaverðan uppruna sem er sokkinn á bólakaf og kæfður í auglýsingum og söluáróðri. Mig langar ekkert frekar í súkkulaði þennan dag en annan. Eða kort sem er krúttilegt. Ég er alltaf til í svoleiðis! En því meira sem verslanir og framleiðendur auglýsa "allt fyrir konudaginn" því minna langar mig í það! Ég vil fá svona gjafir á öðrum forsendum, takk. Mig langar að vita hvernig konu- og bóndadagurinn kom til. Það er örugglega einhver sérstök ástæða fyrir því sem jafnvel gæti fengið fólk til að hugsa sinn gang og meta sína konu eða sinn bónda á annan hátt en það hefur tamið sér að gera. Líklega á það sama við um Valentínusardaginn og ef ég vissi hver uppruni hans er þá myndi ég örugglega hafa meiri áhuga á að gera eitthvað óvenjulegt í tilefni dagsins.
Mér finnst Michael Moore vera listamaður. Kannski er bandvitlaust að finnast það, ég bara veit það ekki.
Ef e-r kann vel að meta það sem A gerir, er A þá listamaður? Ef enginn metur það sem B gerir, er B þá ekki líka listamaður? Er það ekki list að gera engum til geðs? Ég myndi halda það.
Æi ég er glaðvakandi.... :o/
Hey, Jói var að tala uppúr svefni rétt í þessu! Ég reyndi að taka það upp á símann en tókst ekki. Allt bull og ekkert skiljanlegt, en tónninn var geðveikt fyndinn. Það var alveg eins og að hann væri að segja brandara eða eitthvað fyndið, ca. 4-5 setningar. Svo semi-hló hann í endann.. hehehe...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli