20.2.05

Pælingar og rólur

Er búin að hanga eitthvað svo mikið í lausu lofti undanfarið. Ekki líkamlega heldur andlega sko. (Sóðahausarnir ykkar sem hugsuðu um kynlífsrólu í svefnherberginu okkar!) En æj, ég er svo klikkuð og hugsa alltof mikið um hlutina. Það er ekki gaman að vera meðvirkur einstaklingur skal ég segja ykkur. Maður býr til svo mikið af vandamálum sjálfur og svo þegar maður er í meðvirkni-sveiflu þá eru allir svo vondir við mann og enginn skilum mann og bla bla bla. En þetta er undir manni sjálfum komið, þessi hegðun er lærð og það réttasta í stöðunni er væntanlega að læra nýja hegðun. Maður fyllist af hroka og pirringi en svo eftir augnablik nær maður áttum og verður auðmjúkur og viðurkennir sína eigin galla. Ég geri það þó annað slagið. Það hlýtur að vera kostur. Og svo er eitt að hafa húmor.. það er möst þegar ég fatta hvað ég er gölluð og að geta beðist afsökunar. Það er stór plús.

Engin ummæli: