Stjörnuþrá
Vinkonur og ég höfum legið yfir bókum og korti sem ég gróf upp. Man ekki hvað þetta heitir en þær 2 bækurnar og eru bláar og misstórar. Svo er kort, með stjörnumerkjunum á. Til að gera stjörnukort þarf maður fæðingardag og ár, og svo reikna út frá tölum sem passa við þann dag. Stjörnukortið er fyllt út og því næst er hægt að reikna aðalgrein, samstöður og afstöður.
Ég var að lesa í Fréttablaðinu að Eiður Smári hafi brillerað í einhverjum leik sl. sunnudag. Við eigum sama fæðingardag, og hann er nú að gera góða hluti. :o) Ég finn það hjá mér að ég er að gera óvenju góða hluti núna. Er m.a. að plana myndlistarsýningu! Já Ýr, sem var svo ofboðslega feimin.
Vissu þið að 95 ára kona getur sagt brandara sem er svo fyndinn að maður tárast úr hlátri? Það er svo merkilegt að pæla í því að líkaminn sé bara tól fyrir sálina, sálin heldur áfram en líkaminn ekki. Ég hef spurt gamla fólkið á Norðurbrún hver sé tilgangur lífsins, og þau segja að hann sé að láta sér líða vel. Heyriði það? :o)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli