blúbb
Súpandi á gosvíni sem fæst í ríkinu í 1&1/2 lítra plastflösku. Smakkast eins og sankría. Langar að gera eitthvað í tilefni þess að það er hálfskýjað úti og að ég datt næstum því á hjóli áðan. Svo fer ég á fimmtudaginn til Kaupmannahafnar. Verð í heila viku. Mikil tilhlökkun hjá míns. Fór á tónlist.is í gærkvöldi og skráði mig í prufuáskrift sem er virk í 3 daga. Er búin að sækja 7 plötur; Lög með Mugison, Leaves, Egil Sæbjörnssyni, Ske og Gunnari Jökli. Helvíti fínt. Endilega hlustið á lagið "Bíllinn minn" með Gunnsa. Svo keypti ég Trabant diskinn áðan. Og setti skóna mína í viðgerð. Fór svo í apótekið en keypti ekkert þar.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli