Allt sem ég segi stendur...
...því ég les allt sem ég segi.
Tók því rólega í gærkvöldi, því dugnaðurinn átti að byrja aftur í dag en hann hefur eitthvað aðeins staðið á sér. Fórum á bíl niðrí bæ í gær um 9 leytið og fengum stæði á Bræðrarborgarstíg, mjög heppilegt. Hefði ekki komist öðruvísi því hnéð hefði ekki höndlað það. Fór heim uppúr 10 þegar stelpurnar voru komnar í röð í "turninn". Brandari samanborið við turninn í Tivoli í Cph. Sá svo flugeldasýninguna útum gluggann í Eddu herbergi, þannig ég missti ekki af öllu saman. Glápti á 3000 miles to Graceland, og hann Kevin Costner var töffari í myndinni, lífið kemur ávalt á óvart. Hafði gaman af henni.
Stuðboltarnir Bogga og Edda gátu ekki staðist það að vekja mig með uppistandi og bröndurum í massavís þegar þær komu heim í nótt. Hafði ekki gaman af - ég vildi frið og ró. Hafði hugsað mér að setja miða á hurðina sem stæði á
En ég held ég sé búin að jafna mig.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli