13.8.05

Eirðarleysi

Ég er svo eirðarlaus. Og leiðist hálf í vinnunni þó svo að hér séu frábærar stelpur að vinna með mér og allir kátir. Ein er með tarot spilin með sér og mun hún spá fyrir okkur og svo er ég með stjörnukortabókina. Andleg vakt framundan.

Eftir vinnu þá ætla ég að kíkja út með Boggu minni, veit ekki alveg hvert, en samt snemma því annars er líklegt að enda í röð og leiðindi. Kann ekki að svindla mér fremst. Næsta föstudag held ég partý fyrir stuðboltana í vinnunni, pöntum pizzu og málum bæinn rauðann. Skemmtilegt.

Hékk heima í gærkvöldi fyrir framan imbann og ekki eins og undanfarna viku þá tókst mér ekki að sofna, því miður. Hékk líka í tölvunni og spjallaði loksins við Fabi sem er í fríi í heimalandi sínu, Brasilíu. Þar er vetur núna. Hún er ástfangin af honum Andrea sínum og líkar vel að vera gift.

Engin ummæli: