Jólahjól
Við Bogga skelltum okkur á Trabant í stúdentakjallaranum. Auður og Pétur voru þar líka en þau þurftu að drífa sig snemma heim. Þetta fullorðna fólk nú til dags. Svo kíktum við á ellefuna og auðvitað var myndavélin með í för. Fengum far heim hjá jólasveinum 3, sem kíktu í kaffi til okkar. Mjög góð stund sem við áttum saman í morgunsólinni. Edda hefur ekkert látið sjá sig, hún kom ekki einu sinni til reykjavíkur í nótt held ég. Bara hangir rétt fyrir utan bæjarmörkin einhversstaðar.
Svo er þjóðráð að nota jólasveinapoka í ryksuguna.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli