Leiðin á réttan stað
Að láta sér líða vel. Allir keppast við það. Að láta sér líða vel. Það hljómar kannski eigingjarnt ef maður segir að allir séu alltaf að keppast við að láta SÉR líða vel. Hvað með alla hina? En ef þér líður ekki vel þá gefur þú ekkert af þér. Og ef þú gefur ekkert af þér er mjög líklegt að fólki líði illa í kringum þig ef það varir í langan tíma. Þess vegna er mikilvægt að láta sér líða vel.
Kapphlaupið að vellíðan getur verið flókið. Hvað gefur mér hamingju? Það sem veitir Önnu hamingju, gerir jafnvel ekkert fyrir Albert. Í dag er mikið gert uppúr því að eiga hitt og þetta. Fína íbúð eða hús, flottan bíl og allt þetta. En vellíðan fylgir ekki þessum hlutum. Hamingjan er ekki keypt. En maður þarf að finna öryggi, umgangast fólk sem maður á samleið með. Er ekki öryggi málið? Ef fólk upplifir öryggi eða sjálfið (sami hluturinn?) í gegnum eitthvað annað (hlut) en sjálft sig er voðinn vís. Rétti staðurinn í lífinu er að vera sjálfsöruggur.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli