Þau urðu sem eitt
Mér finnst svo merkilegt að eftir því sem hjón eldast, því líkari verða þau hvort öðru. Sbr. glæru úr kynjafræði: Kynbundin hegðun einkennir kynin allt lífið en þó nálgast gömul hjón í ellinni, tala t.d. jafn mikið. En hvar byrjar þessi ólíka hegðun kynjanna? Rannsóknir sýna að kynin byrja að leika sér á ólíkan hátt við þriggja ára aldur og velja þau þá sér kyn. Flestir þekkja nú helstu atriðin sem greina hegðan kynjanna í sundur.
Femínismi er ekki að berjast fyrir því að konur verði eins og karlmenn, þó þær vilja öðlast sömu réttindi og tækifæri og karlar. Síðastliðin ár hefur svokölluð kvennamenning verið lofuð og ekki reynt að afnema hana til að öðlast jafnrétti. Bæði kynin þurfa að fá að njóta sín á sinn hátt, og hver einstaklingur á sinn máta.
Ég held að gott væri ef samskipti allra og fyrirkomulag lífsins væri fábrotnara. Margir valkostir rugla í ríminu og valda jafnvel tilvistarkreppu. Því held ég að sé gott að hugsa til frumbyggja Afríku annað slagið og ímynda sér að maður tilheyri því samfélagi. Maðurinn fer út að veiða með vísakorti, og konan hreinsar leirtauið heima með uppþvottavélinni.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli