Pizza
Mig langar svo geðveikt að kaupa mér bíl sem ég sá áðan á bílasölu. Hann kostar eina og hálfa og er vínrauður, veit ekki hvaða tegund. Svo langar mig í nýjar gallabuxur sem eru seldar í 17.. oh. Það er líka leðurjakki þar og skór í stíl. Svo sá ég draumaíbúðina á mbl.is í gærkvöldi. Hún kostar 14 millur. Gæti reddast ef ég tek 90% lán. Það þarf að kaupa nýja eldhúsinnréttingu og gera baðið upp, en það væri bara gaman. Svo langar mig líka í sólgleraugu og pizzu.
Reyndar langar mig bara í pizzu.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli