Fræga fólkið
Við Engihlíðarósirnar erum að leita að prinsessuíbúð fyrir okkur, og það er eitt sem hefur einkennt allar íbúðirnar sem við höfum skoðað. Allir eigendurnir eru frægir leikarar eða söngvarar sem er nú ekkert slor. Við erum sem sagt á morgun að fara að skoða hús á Vesturgötu sem er í eigu Felix Bergssonar. Það er höll á 2 hæðum og er 150 fermetrar. Leigan er í dýrara lagi en hugsanlega getum við prúttað aðeins og jafnvel fengið 1 prinsessu til viðbótar eða prins, krónprins, til að leigja með okkur.
Ég er núna í konukoti og alltaf þegar ég kem hingað verð ég syfjuð. Veit ekki afhverju, en ég sofnaði næstum áðan og mun örugglega leggja mig aðeins á eftir. Ekki mikið að gera eins og er.
Mér var boðið starf í grænmetisdeild Bónusar á föstudaginn. Það er ekki á hverjum degi sem manni er boðið starf sem er líka vel borgað. En það er nú ekki starf í Bónus heldur hjá Skýrr. Ég er að spá í að athuga það betur þar sem mér finnst ég hafa öðlast þá reynslu sem mig þyrsti í á núverandi vinnustað. Svo er ég líka í þessu sjálfboðaliðastarfi sem er gefandi.
Ég er að spá í að kíkja í tíma í verkfræði-, eðlisfræði- og stærfræðiskorinu til að átta mig betur á því í hversu skemmtilegu námi ég er. Ég er voða off í skólanum þessa dagana.
Ég setti inn nokkrar myndir frá Ameríkuferðinni en ég verð að viðurkenna að ég var aldrei í stuði til að taka myndir. Það segir nokkuð um hvernig mér leið í þessari ferð, en já hún opnaði augun og mér hefur varla liðið betur frá því ég kom heim.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli