Krimmi hetja dagsins
Í fréttum er það helst að Krimmi bjargaði Víbblaskotti úr krísu. Ég kom heim eftir langan en góðan dag kl. 23:05 (svona u.þ.b. svo ég sé nú ekki að ljúga hérna) og ákveð af einhverri ástæðu áður en ég fer inn að blístra á Vífil (geri það reyndar mjög oft, við misgóðar undirtektir. Hef lent í því að það hafi verið sussað á mig) En ég hafði ekki séð hann í nokkra daga vegna læritarnar hjá gamla stellinu. Nú, já, það sem gerðist var að ég heyrði mjálm. Myrkrið gerði það að verkum að ég gat ekki séð hvaðan það kom. Tjara kom stökkvandi útum baðherbergisgluggann og ennþá heyrðist mjálmið. Sé ég þá ekki Krimma mjálma fyrir framan bílskúrshurðina sem er hérna í bakgarðinum. Fer ég til Krimma sem hleypur ekki í burtu (eins og sumir) heldur situr sem fastast og heldur áfram að mjálma. Ég ákveð að opna hurðina og sé ég þá Vífil þar inni. Sá var glaður að komast út. Krimmi hetja dagsins! Hef ekki hugmynd um hvað hann var búinn að vera lengi þarna inni, en sem betur fer fór ég og blístraði.. Crazy catwoman ég.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli